Hrólfur og Blíðfinnur
Sjálfsagt verð ég seint valinn afkastmesti bloggarinn. Hvað verkefnalistanum viðkemur hef ég hins vegar staðið mig alveg bærilega.
Ég fór ásamt manninum mínum með kettina okkar tvo, Hrólf og Blíðfinn, til dýralæknis um daginn. Það er kannski hálfskrítið að tala alltaf um þá sem okkar ketti þar sem þeir hafa búið hjá foreldrum mínum síðan við fluttum út til Bretlands fyrir nokkrum árum.
Við ákváðum að taka þá ekki aftur eftir heimkomuna, meðal annars vegna þess að þeir höfðu vanist því umhverfi og við vildum ekki enn og aftur rífa þá upp með rótum. Í öðru lagi búa þeir við svo gott yfirlæti - reyndar finnst mér þeir stundum hafa það aðeins of gott - að við vinnualkarnir gætum sjálfsagt ekki veitt þeim neitt í líkingu við það. Þannig að foreldrar mínir annast þá eftir sem áður, en við sjáum hins vegar áfram um að fara með þá í árlegt eftirlit, bólsetningu osfrv. hjá dýra.
Heimsóknir þangað hafa gengið upp og ofa í gegnum tíðina skulum við segja; þeir virðast alltaf finna á sér hvert þeir eru að fara og stressast og láta stundum öllum illum látum. Fram að síðustu heimsókn var sjálfsagt eftirminnilegast þegar Blíðfinnur stökk í móðursýkiskasti af borðinu hjá dýralækninum niður á gólf með sprautu í hálsinum og hljóp þannig um alla stofuna viðstöddum til mikillar ánægju.
Síðasta heimsókn get ég þó sagt með vissu að slái öllu við. Þá gekk allt frekar vel og kettirnir fremur rólegir í búrunum á biðstofunni, eða þar til unglingur, sem hafði ásamt fleirum mætt með illa laskaðan kött í skoðun, fékk skyndilegt flogakast á stofunni, rak höfuðið í skurðarborð, fékk höfuðáverka, heilahristing og kastaði upp. Ætlaði svo að rjúka út af stofunni ringlaður og óttasleginn þrátt fyrir tilraunir allra viðstaddra til að stöðva hann. Maðurinn minn, ásamt fleirum, náði til allrar hamingju að tala hann til og halda honum rólegum þar til sjúkraliðar sóttu drenginn og fluttu ásamt kærustinni í sjúkrabíl á Landsspítalann. Þar með fór allt betur en á horfði í fyrstu, og allt annað, óróleikinn í köttununm, öðrum dýrum og dýraeigendum á stofunni hvarf í skuggann af þessari uppákomu. Sjálf bólusetningin og ormahreinsunin (98) gekk svo eins og í sögu.
Heimsókn til dýra er aldrei laus við dramatík.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home