laugardagur, mars 21, 2009

Nýtt upphaf

Hvernig er best að byrja aftur þegar maður hefur ekki bloggað í nokkur ár? Kannski er bara ágætt að rifja aðeins upp hvernig síðan varð fyrst til og hvað hefur gerst síðan ég hætti að blogga.

Ævintýrið hófst sumsé fyrir 5 árum, þegar var ég að vinna hjá kvikmyndagerðarfyrirtæki, var í meistaranámi, í sambandi og barnslaus. Maðurinn minn sótti um vinnu hjá flugfélagi, fékk hana og þar sem staðan var á Bretlandseyjum, ákvað ég að segja góða starfinu mínu lausu, leigja húsið okkar og hoppa upp í næstu flugvél til Glasgow þar sem við bjuggum í meira en hálft ár. Þaðan fluttum við svo til Bristol og loks lá leiðin til Indlands, en eftir ævintýralega veru þar ákváðum við að þetta væri gott í bili og snérum heim. Um dvöl mína í útlöndum fjallaði ég á blogginu, kannski stundum full ítarlega, og eftir heimkomuna hætti ég alveg að skrifa, bæði vegna þess að tilgangurinn með skrifunum var fyrst og fremst sá að segja frá dvölinni og halda utan um hana hálfgerða dagbók, og eins af því að ég fékk fljótlega vinnu á fjölmiðli og hafði ekki undan við að skrifa þar.

Þremur árum seinna vinn ég á sama fjölmiðli, bý með sama manninum, sem ég er nú hamingjusamlega giftur, er enn barnlaus og í sama húsinu, sem hefur að vísu undirgengist róttækar breytingar frá því að við tókum aftur við því. En aðeins eldri og vonandi vitrari. Því miður hefur hins vegar ýmislegt setið á hakanum í þessi þrjú ár. Mér hefur til dæmis ekki alltaf tekist að rækta fjölskyldu og vini sem skyldi, barneignir eru enn á einhverju algjöru umræðustigi, því miður, metsölubókin er ekki langt á veg komin og ég hef tvisvar gefist upp á Óbærilegum léttleika tilverunnar eftir Milan Kundera.

Þá erum við komin að ástæðu þess af hverju ég ákvað að byrja aftur að blogga. Í sinni upphaflegu mynd var bloggið löng ferðasaga. Ferðalaginu lauk. Blogginu líka. Og af hverju að byrja þá aftur?

Kannski má segja að ég sé aftur að leggja af stað í einskonar ferðalag. Í þessu tilviki ferðlag í gegnum verkefnalista sem ég hef útbúið sérstaklega og sett á síðuna hérna til hliðar. Og "verkefnunum" á þessum lista ætla ég að ljúka, eða gera að minnsta kosti heiðarlega tilraun til þess, á næstu mánuðum eða árinu.

Sumt eru ókláruð verkefni, á öðrum hef ég ekki einu sinni byrjað, í sumum tilfellum er um gamlar syndir að ræða, í öðrum eitthvað sem mig hefur lengi langað til að gera eða jafn vel dreymt um en ekki látið verða af því. Í hvert skipti sem ég lýk einhverju eða reyni það ætla ég að setja inn færslu. Sumum verkefnum verður auðvitað ekki lokið, til dæmis eins og að rækta vini og vandamann, vera góður við eiginmanninn og svo framvegis. Sum gætu óvænt orðið reglulegir viðburðir, eins og brasilíska vaxmeðferðin eða ferðin í Fíladelfíu. Hver veit nema það bætist síðan við hann. Það skemmtilega við að útbúa svona lista, er að hann getur einmitt verið óútreiknalegur að ýmsu leyti svo ekki sé nú talað um hversu miklu mætti koma í verk.

Auðvitað er þetta alls ekki nýtt undir nálinni. Hugmyndin er fengin úr bráðskemmtilegri bók sem ég las nýlega og kallast The To do list eftir blaðamanninn og metsöluhöfundinn Mike Gayle, sem hefur verið kallaður karlkyns útgáfan af Brigdet Jones. Gayle þessi setti saman svona verkefnalista og skrifaði svo um hann með það að markmiði að koma reglu á líf sitt og fullorðnast eitthvað í leiðinni. Þar erum við Gayle reyndar hins vegar ekki sammála. Ég ætla ekki einu sinni að gera tilraun til að verða fullorðinn. En vonandi þroskar ferðalagið mig.

Roald.

1 Comments:

Blogger Unknown said...

Thessi listi er snilld! Tid erud lika velkomnir til Noregs...tar geturu lika farid i fjallgonguna og slegid tvaer flugur i einu höggi.
Knus&kram
Brynja

4:17 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home