sunnudagur, júní 21, 2009

Laxness, Austen og Lynch

Kláraði loksins Sjálfstætt fólk um daginn (35) og skil vel þann heiðurssess sem bókinni hefur verið skipað í. Algjört meistaraverk. Næst snéri ég mér að Jane Austen (36), þar sem ég vildi sökkva mér í eitthvert léttmeti. Bað Sollu vinkonu mínaum að mæla með einni góðri, niðurstaðan var Hroki og hleypidómar og ég varð síður en svo svikinn.

Fínasta bók sem ég lauk á mun skemmri tíma en Sjálfstætt fólk enda allt annars eðlis, bæði styttri og léttari í alla staði þótt viss ádeilubroddur sé til staðar og sömuleiðis áhugaverðar og framsæknar hugmyndir um stöðu kvenna amk miðað við ritunartíma verksins. Áhugaverðast þótti mér þó viðbrögðin sem bókalesturinn vakti í vinahópnum þar sem sama fólk og hafði hrósað mér í hástert fyrir lesturinn á Sjálfstæðu fólki var tilbúið til að rakka bókmenntir Austen niður, flest þó án þess að hafa gert sér far um að lesa eins og einn staf í verkunum hennar eins og ég komst svo síðar að. Eintómur hroki og hleypidómar, segi ég nú bara um þetta framferði vinanna.

David Lynch hefur verið í miklu uppáhaldi hjá mér um langt skeið eða allt frá því að ég sá á sínum tíma sjónvarpsþættina Tvídranga. Ég hlýddi ásamt Rut vinkonu á þennan snilling ræða innhverfa íhugun í gamla Saltfélags-húsnæðinu um daginn þegar hann var staddur á landinu. Dustaði í kjölfarið rykið af Tvídrangaþáttunum, fyrri seríunni, (119) og komst að því mér til mikillar ánægju að þeir hafa gjörsamlega staðist tímans tönn, meðal annars vegna þess tímaleysis sem einkennir þá. Lynch var nefnilega svo hugvitssamur þegar hann gerði þá í upphafi 10. áratugarins að sveipa allt hálfgerðum rokkabillístíl, þannig að áhorfandinn verður lítt var við skelfilega tískuna frá fremleiðslutímanum. Eða amk ekki þar til íslendingarnar skjóta upp kollinum. Það verður að segjast eins og er að þeir eru pínku halló.

Endurtekinn leikur en þó með smá tvisti

Ég tel niður dagana þar til ég fer í sumarfrí. Í ár ætlum við félagarnir að endurtaka leikinn frá því í fyrra og hitteðfyrra og vera ásamt foreldrum mínum og systur í húsinu hjá tengdó og bestum vinum þeirra rétt hjá Alicante á Spáni. Ég gekk um daginn frá miðakaupum (65), og blöskraði reyndar vegna þess hversu mikið fargjaldið hefur hækkað í verði frá því fyrra - held það sé einhver 20 þúsund kall. Huggaði mig þó við þá staðreynd að fríið á eftir að vera dýrðlegt ef að líkum lætur.

Að þessu sinni ætlum við tveir hins vegar vegar áður en til Alicante er farið að verja 10 dýrðar dögum í uppáhalds borginni minni, Barcelona, í íbúð sem við erum búnir að taka á leigu af íslensku pari og höfum reiknað út að muni spara okkur alveg heilmikla peninga. Hótel hefði verið uþb 10.000 krónum dýrara auk þess sem við spörum okkur heilmikið á því að versla í matinn og borða oftar heima en á veitinga- og kaffihúsum. Ekki svo að skilja að við ætlum að lifa einhverju meinlætalífi í þessari dásemdar borg, þvert á móti. Heimsóknir á veitingastaði, kaffihús, söfn og skemmtistaði eru á dagskrá.

Svo tekur við almennt afslappelsi, át, bókalestur og fleira þegar fjölskyldan mætir á svæðið. Að þessu sinni ætla svo tengdaforeldrarnir að slást í hópinn og ég er ekki í neinum vafa um að það eigi eftir að fara vel á með þessum fjórum herforingjum. Fimm ef ég tel yndislega systur mína með sem verður seint talin skoðanalaus eða bæld manneskja, frekar en restin af familíunni.

Hrólfur og Blíðfinnur

Sjálfsagt verð ég seint valinn afkastmesti bloggarinn. Hvað verkefnalistanum viðkemur hef ég hins vegar staðið mig alveg bærilega.

Ég fór ásamt manninum mínum með kettina okkar tvo, Hrólf og Blíðfinn, til dýralæknis um daginn. Það er kannski hálfskrítið að tala alltaf um þá sem okkar ketti þar sem þeir hafa búið hjá foreldrum mínum síðan við fluttum út til Bretlands fyrir nokkrum árum.

Við ákváðum að taka þá ekki aftur eftir heimkomuna, meðal annars vegna þess að þeir höfðu vanist því umhverfi og við vildum ekki enn og aftur rífa þá upp með rótum. Í öðru lagi búa þeir við svo gott yfirlæti - reyndar finnst mér þeir stundum hafa það aðeins of gott - að við vinnualkarnir gætum sjálfsagt ekki veitt þeim neitt í líkingu við það. Þannig að foreldrar mínir annast þá eftir sem áður, en við sjáum hins vegar áfram um að fara með þá í árlegt eftirlit, bólsetningu osfrv. hjá dýra.

Heimsóknir þangað hafa gengið upp og ofa í gegnum tíðina skulum við segja; þeir virðast alltaf finna á sér hvert þeir eru að fara og stressast og láta stundum öllum illum látum. Fram að síðustu heimsókn var sjálfsagt eftirminnilegast þegar Blíðfinnur stökk í móðursýkiskasti af borðinu hjá dýralækninum niður á gólf með sprautu í hálsinum og hljóp þannig um alla stofuna viðstöddum til mikillar ánægju.

Síðasta heimsókn get ég þó sagt með vissu að slái öllu við. Þá gekk allt frekar vel og kettirnir fremur rólegir í búrunum á biðstofunni, eða þar til unglingur, sem hafði ásamt fleirum mætt með illa laskaðan kött í skoðun, fékk skyndilegt flogakast á stofunni, rak höfuðið í skurðarborð, fékk höfuðáverka, heilahristing og kastaði upp. Ætlaði svo að rjúka út af stofunni ringlaður og óttasleginn þrátt fyrir tilraunir allra viðstaddra til að stöðva hann. Maðurinn minn, ásamt fleirum, náði til allrar hamingju að tala hann til og halda honum rólegum þar til sjúkraliðar sóttu drenginn og fluttu ásamt kærustinni í sjúkrabíl á Landsspítalann. Þar með fór allt betur en á horfði í fyrstu, og allt annað, óróleikinn í köttununm, öðrum dýrum og dýraeigendum á stofunni hvarf í skuggann af þessari uppákomu. Sjálf bólusetningin og ormahreinsunin (98) gekk svo eins og í sögu.

Heimsókn til dýra er aldrei laus við dramatík.